Samstarfsaðili Pantheon

Pantheon & 1xINTERNET

Pantheon er einn af leiðandi WebOps vettvangsveitendum. Við höfum unnið með Pantheon síðan árið 2018 með það að markmiði að hjálpa viðskiptavinum okkar að leysa flókin stafræn vandamál. 

Meira um Pantheon

Lógó Pantheon

Sameiginlegt markmið okkar

Sameiginlegt markmið okkar er að nýta allt það sem Drupal hefur upp á að bjóða, búa til sveigjanlega þróunarinnviði og framúrskarandi hýsingarlausnir fyrir alla viðskiptavini okkar.

Pantheon setti af stað hugmyndina um WebOps, sem gerir teymum kleift að þróa vefsíður, prófa þær og gefa breytingar út hraðar og á öruggari máta. Saman búum við til vefsíður sem skila virði og stuðla að hraðari viðskiptavexti viðskiptavina okkar.

Ræðum þínar hugmyndir

Lógó frá Pantheon og 1xINTERNET

Samstarf með Pantheon

Meira um samstarf okkar

 

Pantheon samstarfsmerki

“1xINTERNET teymið er magnaður hópur skapandi og samvinnuþýðra Drupal sérfræðinga sem hafa það að markmiði að búa til framúrskarandi lausnir fyrir viðskiptavini sína. Þau deila ástríðu Pantheon fyrir frjálsum hugbúnaði og fyrir því að nýta WebOps til að auka afköst, frammistöðu og áhrif fyrir markaðsfólk, hönnuði og forritara.”

Jeff Siegel, VP of Partnerships, Pantheon

Hvað er sérstakt við Pantheon?

Pantheon er einnig á meðal áreiðanlegustu hýsingaraðila fyrir Drupal vefsíður á markaðnum. Allar vefsíður sem eru hýstar hjá Pantheon græða á því að lausnin þeirra er samnýtt (multitenant) og sett saman af einingum sem kallast "containers" (container-based architecture). Pantheon hýsingin er byggð á Google Cloud Platform.

Öryggi og frammistaða eru forgangsatriði hjá Pantheon. Sérhver síða sem er hýst hjá Pantheon fær einnig fínstilltan tæknipakka til að ganga úr skugga um að síðurnar séu eins hraðskreiðar og öruggar og hægt er.

Gagnageymslur Pantheon eru staðsettar í Kanada, Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu. Pantheon sér til þess að allar síður og allt sem því viðkemur, t.d. gagnagrunnar, vefvélar og fleira, sé hýst á því svæði sem uppsetning átti sér stað. Allar gagnaflutningar eru í samræmi við GDPR og aðrar reglur um gagnaflutning.

Pantheon hýsingarinnviði

Meira um Pantheon

Pantheon vörur

 

Meira um Acquia vörur

Pantheon services

 

More about Pantheon services

Pantheon workflows

 

More about Pantheon workflows