3 tilnefningar til Splash Awards 2023

3 min.
3 tilnefningar til Splash Awards 2023

Splash Awards eru Óskarsverðlaun Drupal heimsins en þau eru ein af fáum verðlaunum sem veitt eru fyrir Drupal verkefni og eru þar af leiðandi afar eftirsótt.

Á hverju ári hljóta framúrskarandi Drupal verkefni viðurkenningar fyrir nýsköpun og stafræna þróun. Frá árinu 2017 hafa verðlaunin verið haldin fyrir þýskumælandi lönd og síðan þá höfum við fengið tækifæri til að sýna fram á okkar þekkingu og nýsköpun.

Okkar tilnefningar

Eftirfarandi verkefni frá okkur voru tilnefnd í ár:

AVL.com - leiðandi tæknifyrirtæki flytur sig yfir í Drupal

AVL - eitt af leiðandi tæknifyrirtækjum heims, með rúmlega 11.000 starfsmenn - tók ákvörðun um að færa sig yfir í Drupal. Afrakstur verkefnisins var hraður og notendavænn vettvangur sem nýtir alla þá styrkleika sem Drupal hefur sem vefumsjónarkerfi.

Skoðaðu vefsíðu AVL

AVL - tilnefnd vefsíða

MAGGI.de - Drupal extension sem skapar ný markaðstækfæri

Maggi.de er framúrskarandi dæmi um stækkunarhæfni Drupal kerfisins, í þessu tilfelli úr einfaldri "uppskriftaleitarvél" í þjónustumiðaða matargátt. Þessu var náð með stöðugu viðhaldi, endurnýjun og þróun eiginleika.

Skoðaðu vefsíðu MAGGI

MAGGI - tilnefnd vefsíða

UICC.org - fyrir alþjóðlegt krabbameinseftirlit

Elstu og stærstu krabbameinssamtök heims, UICC, opnuðu nýja og betrumbætta vefsíðu. Verkefnið sker sig úr hvað varðar sýnileika á vefnum, gagnaöryggi, aðgengi, notagildi og bakenda samþættingu

Skoðaðu vefsíðu UICC

UICC - tilnefnd vefsíða

Þýsk-austurrísku Splash Awards verðlaunin

Splash Awards eru ekki aðeins viðurkenning fyrir framúrskarandi verkefni, heldur einnig tækifæri til að mynda tengsl, tala um nýjustu strauma í vefþróun og hönnun og fagna bestu lausnunum.

Og sigurvegarinn er…

Í ár verða Splash Awards afhent þann 10. nóvember í Mannheim, Þýskalandi. Líkt og áður erum við spennt að sýna afrakstur okkar vinnu og vonumst eftir góðum árangri í ár. Við óskum öllum tilnefndum til hamingju og hlökkum til að skiptast á hugmyndum við aðra Drupal sérfræðinga.

Sjá öll tilnefnd verkefni

Sigurvegararnir okkar í fyrra

Fjölsíðukerfi

Schwabe Group - miðlægt fjölsíðukerfi

Grænt tún með Dísarunnum

Fjölsíðukerfi (e. multisite solution) veitir góða yfirsýn og miðlæga stjórnun allra vefsíða, það dregur úr kostnaði, og auðveldar samræmt útlit milli...

E-commerce solution Multisite solution

Transgourmet - multisite and headless e-commerce

Transgourmet food trucks next to the warehouse

Developing a multisite CMS platform with Drupal and Commercetools to offer customers and suppliers the latest digital convenience.

Vefverslanir

BSB - headless e-commerce

Skip á siglingu um Bodenvatn

Sérstilling og hámarksafköst með Drupal: notendamiðuð vefsíða með samþættu headless e-commerce kerfi til að auka sölu á netinu.