
Afkastamikil vefsíða sem býður upp á frábæra notendaupplifun sker sig úr á stafrænum markaði. Það er lykilatriði að velja rétta tækni sem ýtir undir velgengni fyrirtækja og gerir þeim kleift að ná öllum sínum markmiðum. React er leiðandi tækni á sviði framendaforritunar. Tæknin byggir á svonefndri "design-first" nálgun þar sem lögð er áhersla á þróun út frá tilbúinni hönnun. React JS og React Native gera framendaforriturum kleift að skapa einstaka notendaupplifun og búa til áreiðanlegar lausnir fyrir bæði vef- og farsímaforrit.
Vertu skrefi á undan með React
React er mjög góður kostur þegar kemur að því að þróa nýjan framenda. React er "component-based" tækni, sem þýðir að hönnunin er sett saman af endurnýtanlegum íhlutum (e. reusable components). React notar einnig virtual DOM (Document Object Model). Þessir eiginleikar gera forriturum kleift að búa til afkastamikla, kraftmikla, skalanlega og hraða notendaupplifun. Hjá 1xINTERNET starfar hópur reyndra React sérfræðinga sem þróa vefi og farsímaforrit með nýjustu tækni. Við vinnum bæði með React JS og React Native svo fyrirtækið þitt geti nýtt alla þá tækni sem í boði er og skarað fram úr meðal samkeppnisaðila.
Leiðandi framendatækni fyrir öflug vef- og farsímaforrit

React þjónustan okkar hjálpar þér að ná þínum markmiðum
React forritun
Það er ekki svo rosaleg áskorun lengur að búa til afkastamikil vef- og farsímaforrit með frábæra notendaupplifun. React JS og React Native sérfræðingarnir okkar gera þér kleift að nýta alla þá möguleika sem tæknin býður upp á og geta búið til framsæknar hágæða lausnir sem eru sérsniðnar að þínum þörfum.
React samþætting
React tæknin miðar að því að mæta öllum viðskiptaþörfum, óháð flækjustigi. Við höfum hóp forritara sem sérhæfa sig í React og geta veitt þér samþættingarlausnir með notkun vefþjónusta (API's) sem tengja fyrirtækið þitt við önnur söfn og utanaðkomandi forrit. Við varðveitum gögnin þín og aukum afköst fyrirtækisins.
ReactiveSearch
Persónuleg leitarupplifun eykur samkeppnishæfni þína á stafrænum markaði. React forritararnir okkar nota ReactiveSearch og samþætta við ElasticSearch bakenda til þess að byggja ofurhraða, skalanlega leitarupplifun. Við innleiðum, fínstillum og bætum leitina þína með sérhönnuðum fyrirspurnum (e. queries) og þemum.
React stuðningur
Okkar sameiginlegu markmið eru að skapa samræmi milli vefsins þíns og farsímaforrita og að auka afköst. Við bjóðum upp á þjónustu frá A til Ö og stuðning fyrir allar vefeignirnar þínar sem eru byggðar í React. Við tryggjum að forritin séu stöðug, öflug og í samræmi við bestu starfsvenjur React þróunar.
Nýttu alla möguleika framendaþróunar með React
Verkefni byggð með React






Skoðaðu hvernig React nýtist fyrirtækjum sem hafa staðið frammi fyrir stafrænum áskorunum
Kostir þess að nota React í vefþróun
Design-first nálgun
React er frábær kostur þegar kemur að því að búa til einstök notendaviðmót þar sem tæknin byggir á hönnunarmiðaðri nálgun (e. design-first approach) og endurnýtanlegum íhlutum.
Endurnýtanlegir íhlutir
React strúktúrinn er "component-based", þ.e.a.s. hann byggir á íhlutunum. Þetta einfaldar samþættingu og viðhald.
Hröð rendering
Einn helsti styrkleiki React er hraði renderingar sem stafar af notkun virtual DOM (Document Object Model).
Afkastageta
React er afkastamikil framendatækni. Einfalt forritunarlíkan React styður við sjálfvirkar stöðubreytingar (e. automatic state changes( þegar gögn eru uppfærð, sem styttir viðbragðstíma og tryggir mikil afköst.
Stöðugleiki kóða
React notar svokallað "downward" gagnaflæði (e. data flow). Til þess að breyta einhverjum hlut (e. object), breytir forritari stöðu (e. state) viðkomandi hlutar. Þessi strúktúr gagnabindingar (e. data binding) gerir kóðann stöðugan.
Sveigjanleiki
React er skalanleg tækni og sveigjanlegt tól í þróun. Hægt er að nota React til að byggja viðmót þvert yfir mismunandi vettvanga.
Einfaldleiki
Íhlutir (e. components) eru smíðaðir í "one-way" gagnabindingarstrúktúr (e. data binding structure). Auðvelt er að prófa og viðhalda kraftmiklum eiginleikum sem eru byggðir í React.
SEO-vænt
React er leiðandi í kraftmiklum og móttæknilegum notendaviðmótum. Í samanburði við aðra tækni er React "lightweight", sem tryggir hraða renderingu og dregur úr hleðslutíma (e. loading time) forrita.
Öflugur Drupal bakendi fyrir forrit þróuð í React
React framendi með Drupal bakenda er öflug samsetning sem gerir forriturum kleift að prófa nýja hluti og byggja samkeppnishæfa vefupplifun. Allar veflausnirnar okkar eru byggðar í Drupal, traustu og áreiðanlegu CMS kerfi sem uppfyllir alla öryggisstaðla fyrir fyrirtæki. 1xINTERNET hefur þekkingu og reynslu sem nýtist þér við samsetningu React framenda og hauslauss Drupal bakenda. Þannig getur þú búið til afkastamikil, móttækileg og gagnvirk vef- og farsímaforrit.
