Drupal Audit

Flest fyrirtæki vilja keyra öflugar vefsíður og hámarka afköst þeirra. Til þess að geta gert það er mikilvægt að láta framkvæma svokallað Drupal “Audit”, eða  endurskoðun fyrir Drupal vefsíður. Þegar vefsíða fer í gegnum endurskoðunina fær eigandi hennar ítarlega greiningu sem gefur góða innsýn í virkni síðunnar. Einnig fær viðkomandi ráðleggingar varðandi viðskiptamarkmið og hvernig hægt er að halda í við síbreytilegt stafrænt umhverfi.

Uppgötvaðu veikleika síðunnar þinnar og möguleika

Engin Drupal síða er eins og allar hafa þær sína veikleika og styrkleika. Við hjá 1xINTERNET framkvæmum Drupal Audit sem er sérsniðið að þínum þörfum og gefur okkur hugmynd um það hvernig vefsíðan þín getur vaxið. Við útbúum ítarlegt yfirlit yfir afköst og öryggi Drupal síðunnar þinnar og metum það hvar hún stendur með tilliti til hugsanlegra flutninga (e. migration) eða uppfærslna sem þú gætir viljað láta gera. Við tryggjum einnig að vefsíðan sé í samræmi við staðlaðar starfsvenjur Drupal. Megináhersla okkar er að ýta undir stafræna velgengni þína og tryggja að fyrirtækið þitt standi framarlega á sviði tækninnar.

Okkar sérsniðna nálgun við Drupal Audits

Custom approach to Drupal Audits

Umfang Drupal Audit endurskoðunarinnar fer eftir þínum þörfum.

Þjónusta sem við bjóðum upp á

Drupal öryggi

Þegar Drupal Audit er framkvæmt er oftast lögð áhersla á að meta öryggi vefsíðunnar. Ítarleg greining veitir okkur upplýsingar um öryggisbresti og veikleika síðunnar, uppfærslur og einnig er gengið úr skugga um að öll virkni sé rétt. Teymið okkar greinir öryggisvandamál sem geta komið upp og hjálpar þér að skilja hvaða áhrif þau hafa á þína starfsemi.

Drupal afköst

Frammistaða og afköst vefsíðu eru lykilatriði í velgengni fyrirtækja. Þegar talað er um afköst er verið að vísa í efni sem nær langt út fyrir Drupal. Þess vegna veljum við samþætta nálgun og vinnum frá framenda og bakenda að innviðum. Við búum yfir þeirri sérþekkingu sem þarf til að geta metið það hvernig vefsíðan þín starfar við mismunandi aðstæður, borið kennsl á flöskuhálsa í frammistöðu og komið með hugmyndir að aðgerðum til að tryggja betri notendaupplifun og auka viðskipti.

Bestu starfsvenjur Drupal

Það skiptir miklu máli að nýta þær uppfærslur sem eru í boði fyrir vefsíðuna þína hverju sinni til að geta keppt á síbreytilegum stafrænum markaði. Við greinum vefsíðuna þína og athugum hvort hún sé í samræmi við bestu starfsvenjur Drupal: flokkun (e. taxonomy), configuration, módúla og kóðunarstaðla. Í þessari endurskoðun er einnig verið að skoða verklagsreglur DevOps teymisins þíns svo þú getir notað þá viðbótartækni sem er í boði og fengið sem mest út úr Drupal.

Drupal uppfærslur & flutningur

Þegar flutningur eða uppfærslur eru á planinu fyrir vefsíðuna þín er æskilegt að hefja ferlið á ítarlegri endurskoðun (audit). Við höfum úrvals Drupal sérfræðinga á okkar snærum sem geta hjálpað þér að finna bestu nálgunina við verkið. Það er auðvelt að framkvæma Drupal uppfærslur, svo lengi sem bestu starfsvenjum Drupal er fylgt. Drupal flutningur (e. migration) er hinsvegar óneitanlega mun flóknara verkefni. Það er nauðsynlegt að hafa djúpan skilning á gagnauppbyggingu svo að hægt sé að ákveða hvaða gögn á að flytja og finna skilvirkustu leiðina. Sérsniðna kóða úr eldri Drupal útgáfum þarf að endurskoða til að tryggja að þeir uppfylli nýjustu kröfur. Endurskoðunin okkar færir þér yfirsýn yfir verkefnið sem þú átt fyrir höndum. 

Drupal SEO Audit & efni

Leitarvélabestun (e. SEO) og bestun efnis er lykilþáttur í því að bæta stöðu vefsíðunnar þinnar í leitarniðurstöðum. Markmiðið er að auka umferðina á síðunni og þar með viðskiptin þín. Við búum að því að eiga frábært teymi markaðssérfræðinga sem sérhæfa sig í markaðssetningu á netinu og geta framkvæmt alhliða SEO og efnis endurskoðun fyrir þig. Þau setja fram ítarlegar hugmyndir um það hvernig þú getur náð viðskiptamarkmiðum þínum og náð til markhópsins þíns. Við vinnum að verkefnum af mismunandi stærðum og bjóðum upp á aðstoð við markaðssetningu á netinu.

Fáðu sérsniðna Drupal endurskoðun

Hafðu samband

Okkar Drupal Audit

Vottaðir Drupal forritarar og sérfræðingar

Áralöng reynsla af Drupal þróun

Sérsniðin nálgun við Drupal endurskoðanir

Háþróuð tól til að greina og meta

 

Sameiginlegt markmið okkar er þín velgengni. Við bjóðum upp á sérfræðiráðgjöf varðandi afköst og öryggi vefsíðunnar þinnar. Með okkar nálgun og notkun háþróaðra greiningar- og matstóla getum við hjálpað þér að skilgreina þína styrkleika og hvað má bæta. Fyrir vikið gefum við þér skýr ráð sem hægt er að framkvæmda og að auki leggjum við fram tillögu að forgangsröðun mála til að hámarka ávinning síðunnar þinnar.

Vel heppnuð verkefni

CMS lausnir

SENEC GmbH - Vefsíða fyrir fyrirtæki

Field of solar panels

SENEC býður viðskiptavinum sínum upp á nýstárlegar sólarorkulausnir. Helsta áskorunin í þessu verkefni var að byggja upp sterka “viðveru á netinu” með...

Fjölsíðulausnir, Hýsingarlausn

Umwelttechnik BW GmbH

Teaser UTBW

UTBW er ríkisstofnun sem starfar á sviði umhverfistækni og auðlindanýtingar. Stofnunin heldur úti mörgum vefsíðum og vildu stýra þeim öllum í einu...