Borði fyrir 1. sæti á Splash Awards

Eldum Rétt - flókin e-commerce lausn

Atvinnugrein
Smásala
Lausn
Vefverslanir
Tækni
Drupal, React, React Native, Apache Solr, Design system, Web components

ÁSKORUNIN

Eldum Rétt stóð frammi fyrir þeirri áskorun að stækka stafræna innviði til að mæta vaxandi kröfum viðskipta sinna. Fyrri vefsíða þeirra var í Drupal 7 og réði ekki við flókna sendingarmöguleika Eldum Rétt. Því þurfti lausn sem kæmi til móts við fjölbreyttar óskir viðskiptavina og byði upp á sérsniðna valkosti.

LAUSNIN

Nýja kerfið var búið til í Drupal 9, sem er nútímalegra og býður upp á aukinn sveigjanleika. Kerfið hefur nú ýmsa möguleika á borð við umsjón með áskriftum, sveigjanlega uppsetningu á máltíðarpökkum. Vefsíðan er einnig öflugri þar sem hún hefur verið samþætt við Drupal Commerce ásamt React Native, ýmsar vefþjónustur (e. APIs) og Solr Search. 

ÚTKOMAN

Samstarfið skilaði verulegum vexti fyrir Eldum Rétt. Hver pöntuð máltíð skilar meiri hagnaði, viðskiptavinum þeirra fjölgaði um 30% og meðalpöntunarstærð á hvern viðskiptavin stækkaði um 50%. Lausnin uppfyllti ekki aðeins brýnar þarfir Eldum Rétt, heldur styður hún fyrirtækið í áframhaldandi þróun.

VIÐSKIPTAVINURINN

Eldum Rétt

Íslenska áskriftarþjónustan Eldum Rétt býður viðskiptavinum sínum upp á matarkassa með matreiðsluleiðbeiningum fyrir heimamatargerð og sendir upp að dyrum. Fyrirtækið er leiðandi á íslenskum markaði. Hugmyndin er að bjóða upp á einstaklega sveigjanlega og fjölbreytta valkosti fyrir fjölskyldur af öllum stærðum sem hægt er að panta og breyta í gegnum netið.

Eldum Rétt var stofnað árið 2013 og var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að bjóða upp á þessa þjónustu. Eldum Rétt veitir viðskiptavinum sínum gríðarlegan sveigjanleika hvað varðar áskriftarpakka, matarval og afhendingu.

Í gegnum vefsíðuna eða appið velja viðskiptavinir uppáhaldsréttina sína og kerfið reiknar út magn hráefna sem síðan er pakkað í kassa ásamt uppskriftum og leiðbeiningum. Í kerfinu er gríðarlegt magn mismunandi máltíða fyrir hvaða tilefni sem er, allt frá einföldum hversdagsmáltíðum yfir í hátíðarrétti fyrir gamlárskvöld. Þessi þjónusta sparar viðskiptavinum stressið í kringum matarinnkaup og dregur úr matarsóun þar sem fólk fær nákvæm hráefni send heim.

Í dag eru um 400.000 máltíðir sendar á íslensk heimili á hverju ári. 35 manns starfa við netverslunina sjálfa. Árið 2022 nam ársvelta Eldum Rétt 1,5 milljörðum króna.

VERKEFNIÐ

Mjög sveigjanlegt og skalanlegt e-commerce kerfi

Upprunalega vefsíðan var byggð árið 2014 með Drupal 7 og Drupal Commerce. Þegar fyrirtækið stækkaði þurfti að uppfæra stafræna innviði til að mæta nýjum kröfum og aukinni eftirspurn. Daglegur rekstur Eldum Rétt byggir að miklu leyti á gögnum úr kerfinu til að geta þjónað viðskiptavinum á skilvirkan hátt.

Með það að markmiði að halda áfram að bjóða viðskiptavinum upp á nýstárlegar og notendamiðaðar lausnir, vildi Eldum Rétt bjóða upp á sérsniðna valkosti hvað varðar áskrift, matarval og afhendingu. Ýmsir eiginleikar hafa verið útfærðir, eins og sveigjanlegar tímasetningar, skammtastærðir, afhendingarstaðir, verð og eldunarleiðbeiningar.

Eldum Rétt leitaðist við að nútímavæða stafrænt umhverfi sitt til að geta nýtt gögn úr kerfinu, fínstillt innri ferla og geta á sama tíma lagt áherslu á sveigjanleika og ánægju viðskiptavina. Algorithminn í bakendanum er mjög flókinn þar sem Eldum Rétt býður upp á mikið úrval af sveigjanlegum matarpökkum og hefur samskipti við viðskiptavini á ýmsan máta, í gegnum push skilaboð, SMS og tölvupóst.

Þetta flókna kerfi krefst öflugrar tækni. Hlutverk okkar er að aðstoða Eldum Rétt við að mæta vaxandi kröfum og þess vegna höfum við stöðugt uppfært og þróað lausnina áfram síðan árið 2018.

Skjáskot af heimasíðu Eldum Rétt
Skjáskot sem sýnir Eldum Rétt máltíðir

Flókinn gagnaflutningur og háþróuð tækni

Á fyrsta stigi þróunar þurfti að flytja tiltæk gögn úr gamla kerfinu inn í nýtt umhverfi Eldum Rétt. Gagnaflutningurinn var tímafrekt verkefni vegna þess hve flókinn gagnastrúktúrinn er. Kortlagning og skilgreining ákvæða (e. dependency resolution) fór fram á meðan verkefninu stóð. Ferlið var einnig enn flóknara vegna magns gagna; rúmlega 250.000 pantanir og alls 1,2 milljónir gagnasetta. Þessi flutningur þurfti að fara fram án nokkurra truflana svo að viðskiptavinir fengju afhentar pantanir sem höfðu verið lagðar inn aðeins nokkrum klukkustundum fyrr í gamla kerfinu.

Drupal Commerce og React

Mjög sveigjanleg e-commerce lausn var byggð með decoupled Drupal Commerce og React Native forriti. Við gátum dregið verulega úr köllum í bakenda með því að nota React, sem einfaldaði ferlið við að val á matarpökkum. Áður en þessu var breytt, kom hver aðgerð af stað mörgum köllum í server-inn, en nú fara aðgerðir fram í gegnum React. Þetta hefur dregið úr notkun sýndarvéla (e. virtual machines) um 30-40% og kerfið er mun stöðugra.

 

API / OAuth

Vefþjónustur (e. API) Eldum Rétt hafa mikla möguleika og geta tengst við ýmsa bakenda, t.d. samfélagsmiðla og farsímaöpp. OAuth tryggir örugga auðkenningu og heimild á vettvangnum (líka í gegnum Facebook og þess háttar). Ennfremur notar Eldum Rétt GraphQL og JSON:API sem gerir öðrum kerfum kleift að sækja hvaða gögn sem er úr kerfinu. Commerce lausnin (sem er "headless") og Eldum Rétt appið, sem er keyrt á React Native, nota þessi tól. Utanaðkomandi kerfi geta líka sótt gögn á öruggan og sveigjanlegan hátt.

SOLR Leit

Leitargögn viðskiptavina eru aðeins aðgengileg stjórnanda og starfsmönnum fyrirtækisins. Þetta er mikilvægur eiginleiki í vefversluninni þar sem öll pöntunarstjórnun fer fram í bakenda kerfisins. Það eru margar mismunandi leitarsíður í kerfinu sem nota mismunandi fleti (e. facettes) eftir notkunartilvikum. Fyrir þessar umfangsmiklu og flóknu aðstæður í bakendanum var modular API Solr order index leit notuð.

Skalanleg hýsing

1xINTERNET hefur búið til einstaklega sterka og skalanlega hýsingarinnviði með Google Cloud Platform. Starfsemi Eldum Rétt kallar á það að innviðir geti tíundast í stærð á augabragði.

Tilkynningar

Eldum Rétt notar háþróað tilkynningakerfi fyrir viðskiptavini sína. Kerfið sendir tilkynningar um atburði á borð við kaup, breytingar á stöðu pantana, greiðslur, áminningar um afhendingar og fleira. Þetta var sett upp með svokölluðu “messaging stack” kerfi, sem gerir Eldum Rétt kleift að senda sveigjanlegar tilkynningar í gegnum mismunandi rásir og leiðir, t.d. með push tilkynningum, SMS eða emaili. Tilkynningar birtast notendum líka í athafnaskránni (e. activity log) á vefsíðunni eða í appinu.

Advanced Queue

Advanced queue er notað í runuvinnslu (e. batch operation) og á aðallega við um verkefni tengd áskriftum.

FRÁ KÚNNANUM

"1xINTERNET hefur stöðugt unnið framúrskarandi vinnu og sýnt fram á áreiðanleika..."

“Öll starfsemi Eldum rétt fer fram í gegnum netið. Upplifun notenda og áreiðanleiki netverslunarinnar er því í fyrirrúmi. Við treystum 1xINTERNET fullkomlega til að leysa hvaða tæknivandamál sem er - allt frá hýsingarinnviðum og UI hönnun til bakenda- og framendaþróunar. Allt er þetta unnið með góðu skipulagi og verkefnastjórnun. 1xINTERNET hefur stöðugt sýnt fram á yfirburði og áreiðanleika á fyrrnefndum sviðum í þau 5 ár sem við höfum unnið með þeim”.

Róbert Karl Lárusson, CTO, Eldum Rétt

Mynd af Róbert Karl Lárusson
HELSTU EIGINLEIKAR

Öflugir eiginleikar fyrir einstaka upplifun viðskiptavina

Áskriftarþjónusta

Áskriftarmöguleikar Eldum Rétt eru umfangsmeiri en gengur og gerist (hjá Amazon eða þess háttar). Hægt er að kaupa hvaða vöru sem í boði er og í öllum áskriftarleiðum er hægt að sleppa einstaka pöntunum eða gera hlé á þeim um einhvern tíma. Viðskiptavinurinn getur líka endurvirkjað áskriftina sína og kerfið passar uppá að hún fari rétt af stað og að pantanir komi með réttu millibili. Ennfremur er öllum máltíðum vikunnar í áskriftinni pakkað saman og þær koma heim að dyrum í einni sendingu.

Mismunandi afhendingarstaðsetningar

Það er vinsælt meðal viðskiptavina Eldum Rétt að geta stillt afhendingarstaðinn. Það er mögulegt að fá pantanir sendar á mismunandi staði, til dæmis ef fólk er statt í sumarbústað.

Sveigjanlegar áætlanir

Eldum Rétt býður upp á sveigjanlega tímaáætlun, þar á meðal hefðbundna vikuáætlun sem er uppfærð á hverjum fimmtudegi og afhending fer fram vikuna eftir, og áætlun fyrir lengri tímabil (2 vikur eða meira) með sveigjanlegum sendingarmöguleikum. Kerfið sýnir sjálfkrafa tiltækar vörur og samsvarandi sendingarmöguleika fyrir viðskiptavininn.

Skjáskot sem sýnir „Veldu rétt“ eiginleikann
Skjáskot sem sýnir hvernig hægt er að sérsníða valið á Eldum Rétt

Persónulegur smekkur

Úrvalið sem Eldum Rétt býður viðskiptavinum sínum upp á er gríðarlegt. Einn af nýlegum eiginleikum kerfisins er möguleikinn á að hanna sinn eigin “smekksprófíl” sem tekur mið af persónulegum smekk notandans. Sem fyrr geta viðskiptavinir valið að skoða rétti sem eru t.d. “vegan” eða “ketó”, en nú geta þeir einnig síað út rétti sem falla ekki undir þeirra smekksprófíl. Snjall algorithmi velur og birtir notanda uppskriftir sem falla að smekk viðkomandi.

Sveigjanleg máltíðarsett og matseðlar

Eldum Rétt býður upp á sveigjanlega samsetningu máltíða. Hægt er að velja magn máltíða og fjölda skammta innan fyrirfram ákveðinna stillinga en strúktúrinn á bakendanum í kerfinu er líka sveigjanlegur. Þetta gerir notendum kleift að endurraða hráefnum í ákveðnum máltíðum. Þessi dæmi eru flókin uppsetningar þar sem verðlagning er breytileg og fer eftir einstaka pöntunum.

Eldum Rétt er í stöðugri þróun til þess að mæta þörfum viðskiptavina sinna, nýlega kom á markað nýr eiginleiki sem býður viðskiptavinum óviðjafnanlegan sveigjanleika hvað varðar sérhannaða matarpakka. Viðskiptavinir geta nú valið þá rétti sem þeim líst best á í hverri viku, óháð matarpakkanum sem þeir tilheyra.

Meira um Veldu rétt

Skjáskot sem sýnir Eldum Rétt eldunarleiðbeiningar

Matreiðsluleiðbeiningar - skref fyrir skref

Matreiðsluleiðbeiningar á PDF formi fylgja matarkössunum. Viðskiptavinir geta einnig nálgast leiðbeiningarnar í gegnum vefsíðuna eða fylgt þeim skref fyrir skref í appinu. Leiðbeiningarnar hafa tekið töluverðum breytingum frá því í gamla kerfinu. Þær innhalda nú nákvæmar upplýsingar sem settar eru upp á skipulagðan máta:

Matreiðsluleiðbeiningar með tímasetningum: Leiðbeiningum er skipt niður í skref sem geta verið mismörg eftir skammtastærð. Þar að auki er magn hráefna reiknað út frá fjölda skammta hverju sinni sem tryggir að allar tölur séu réttar í leiðbeiningunum.

Næringarinnihald og hitaeiningar: Í kerfinu eru allar upplýsingar um næringarinnihald og hitaeiningafjölda hráefna geymdar. Þær upplýsingar eru síðan notaðar til þess að reikna út næringarinnihald hverrar máltíðar og til að skilgreina hugsanlega ofnæmisvalda.

Annað: Notendur hafa aðgang að upplýsingum um erfiðleikastig og eldunartíma, sem og umsögnum frá öðrum notendum.

Skjáskot sem sýnir Eldum Rétt snjallumbúðir

Umbúðir sniðnar að pöntunum

Eldum Rétt notar snjall-algorithma fyrir pökkun pantana. Kerfið geymir upplýsingar um stærð hverrar vöru (breidd, hæð, dýpt, þyngd) og hvaða umbúðir eru tiltækar á lagernum til pökkunar. Kerfið reiknar einnig út hagstæðustu leiðina til að pakka hverri pöntun og sendingarkostnað.

Viðskiptavinir geta valið að vörunum þeirra sé pakkað í eins fáar sendingar og hægt er eða valið mismunandi afhendingarstaði fyrir hverja vöru. Þessi virkni í kerfinu tekur mið af sendingarframboði á vörum, t.d. hvort heimsending sé í boði. Þetta getur verið mismunandi eftir póstnúmeri viðskiptavinarins. Það að vörum sé pakkað í umbúðir sem búið er að reikna út að passi akkúrat er umhverfisvænna og dregur úr sendingarkostnaði.

Skjáskot sem sýnir Eldum Rétt gjafabréf
Skjáskot sem sýnir aukavörur Eldum Rétt

Sveigjanleg verð

Margir hafa áhyggjur af því að áskriftarþjónusta sem sendir matarkassa heim að dyrum sé of dýr. Þetta á sérstaklega við um yngri kynslóðina. Hjá Eldum Rétt geta viðskiptavinir valið um að dýrari máltíðir birtist þeim ekki í kerfinu.

Gjafabréf

Viðskiptavinahópur Eldum Rétt fer stöðugt vaxandi og meðlimir hans vilja deila matreiðslugleðinni með vinum og vandamönnum. Nú er hægt að kaupa “gjafabréf” þar sem viðskiptavinir ráða upphæðinni. Bakendinn tekur mið af skattlagningu matar og drykkjar.

 

Aukavörur

Eldum Rétt býður upp á aukavörur þegar gengið er frá pöntun, t.d. eftirrétti eða máltíðir sem passa við ákveðin tilefni. 

 

“Við kunnum mjög vel að meta hvernig heimsklassa Drupal forritarar 1xINTERNET hafa aðlagað og innleitt Drupal Commerce módúlana að óhefðbundnu notkunartilviki okkar á þann hátt að við getum enn nýtt alla möguleika þess, sérstaklega áskriftir. Á síðunni okkar er oft mikil traffík og á álagstímum kemur sér vel hvað hýsingin eru skalanleg. Það dregur úr kostnaði”.

Róbert Karl Lárusson, CTO, Eldum Rétt

Verðlaun fyrir sveigjanleika og sjálfbæra þróun

Verkefnið vann til verðlauna á þýsk-austurrísku Splash Awards: „Eldum Rétt - Matarsendingarþjónusta byggð á Decoupled Drupal Commerce og React Native App“ en viðurkenningin var veitt fyrir flókna og sveigjanlega lausn.

Meira um sigurvegara Splash Awards 2019

AF HVERJU DRUPAL?

Vefumsjónarkerfi á heimsmælikvarða og sveigjanlegt e-commerce kerfi

Þegar Eldum Rétt hafði samband við okkur árið 2017 var vefsíðan þeirra keyrð á Drupal 7. Í dag er Eldum Rétt vefsíðan keyrð á Drupal 9, sem er nútímalegur hugbúnaðarrammi sem býður upp á marga eiginleika sem eru tilbúnir til notkunar (out-of-the-box). Má þar nefna heimsklassa CMS eiginleika og mjög sveigjanlega viðskiptalausn með Drupal Commerce). Til þess að koma til móts við flóknustu kröfurnar hönnuðum við sérsniðna e-commerce virkni fyrir þetta verkefni. Þar sem Drupal er frjáls hugbúnaður var hægur leikur að bæta auka eiginleikum við lausnina. Drupal hefur miklar stækkunarmöguleika í gegnum vefþjónustur (APIs) og það gerir Eldum Rétt kleift að geyma megnið af gögnunum sínum inni í Drupal, t.d. upplýsingar um vörur, notendur og pantanir. Notendur geta síðan sótt þessar upplýsingar í gegnum hinar ýmsu rásir.

“Fyrirtækið okkar hefur verið að stækka stöðugt samkvæmt öllum mælikvörðum. Drupal hefur sannað sig sem góður grunnur fyrir vöxt og kerfið aðlagar sig að okkar þörfum”.

Róbert Karl Lárusson, CTO, Eldum Rétt

Önnur verkefni

E-commerce solution, Multisite solution

Transgourmet - multisite and headless e-commerce

Transgourmet food trucks next to the warehouse

Developing a multisite CMS platform with Drupal and Commercetools to offer customers and suppliers the latest digital convenience.

Vefverslanir

BSB - headless e-commerce

Skip á siglingu um Bodenvatn

Sérstilling og hámarksafköst með Drupal: notendamiðuð vefsíða með samþættu headless e-commerce kerfi til að auka sölu á netinu.